Fjölþjóðleg þjálfun

Hér eru upplýsingar um tækifæri sem bjóðast náms- og starfsráðgjöfum til þess að afla sér þjálfunnar erlendis og um löndin almennt. Einnig er vel þess virði að leita að upplýsingum um ráðstefnur og aðra viðburði í dálkunum dagbók og ráðstefnur.

Akademia

Akademia verkefnið býður upp á námskeið fyrir evrópska náms- og starfsráðgjafa. Verkefninu er ætlað er að auka hæfni þeirra með því að gera þeim fært að kynnast því sem fram fer í/á Belgíu, Bretlandi, Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Frakklandi, Grikklandi, Írlandi, Íslandi, Ítalíu, Lúxemborg, Noregi, Póllandi, Portúgal, Spáni, Svíþjóð, Rúmeníu, Tékklandi, Ungverjalandi og Þýskalandi.

Akademia verkefnið er fjármagnað af Leonardo da Vinci áætluninni. Frekari upplýsingar um það eru hér. Einnig má hafa samband Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar.