Flutningur

Réttindi

Allir borgarara ESB og EES eiga rétt á að flytja til annars ríkis innan svæðisins. Þessi réttur er bundinn í lögum. Borgarar ríkja ESB eru jafnframt borgarar sambandsins í heild.

Skjöl

Ekki er þörf á áritun eða sérstöku leyfi til þess að ferðast milli landa innan ESB eða EES, aðeins er beðið um skjöl til sönnunar því að fólk sé það sem það segist vera (vegabréf eða sambærileg skjöl). Skynsamlegt er að fá sér evrópskt sjúkratryggingarkort áður en lagt er í hann. Það tryggir að unnt er að fá neyðarþjónustu strax frá fyrsta degi, sé þörf á henni. Ef fólk ætlar sér að dvelja í langan tíma (venjulega 3 mánuði eða lengur) þarf það að sækja um dvalarleyfi.